Þetta kartöflusalat er í anda suðvesturríkja Bandaríkjanna þar sem oft gætir áhrifa frá Mexíkó. Enda er í salatinu að finna lime, kóríander og chili, allt grunnhráefni í mexíkóska eldhúsinu.
Það er auðvitað hægt að kaupa tilbúnar grillsósur í öllum verslunum. Það jafnast hins vegar ekkert á við heimatilbúnar sósur. BBQ-sósa er yfirleitt notað sem samheiti yfir grillsósur þar sem tómatsósa er uppistaðan.
Hugmyndin að þessari uppskrift, sem fyrst náði vinsældum hjá grillurum í Bandaríkjunum, er jafn snilldarleg og hún er einföld. Í raun þarf ekkert annað en kjúkling og bjórdós. Þetta er mjög sniðug leið til að koma gestum á óvart í grillveislu.
Stórlúða er fiskur sem hentar mjög vel til grillunar, ekki síst ef hún er skorin í þykkar og fínar sneiðar. Hér er hún gerð með afbrigði af gremolata en það er kryddjurtamauk sem er nokkuð notað í matargerð Norður-Ítalíu.
Ofnbakaðir tómatar og sítrónur eru tilvalið meðlæti með grilluðum fiski. Tómatarnir verða sætir og safaríkir og það sama má segja um sítrónurnar. Það er tilvalið að pressa safann úr þeim yfir fiskinn.
Þetta er pizza blanca eða hvít pizza en það nefnast þær pizzur þar sem ekki er notuð tómatasósa. Áleggið á þessa er ekki af verri gerðinni eða smjörsteiktur humar og ofnbakaður hvítlaukur.
Þessi uppskrift er tímafrek að því leytinu til að það er ekki fyrr en á þriðja degi sem öndin er elduð. Biðin er hins vegar þess virði og hvert skref uppskriftarinnar er einfalt í framkvæmd.
Bakaður hvítlaukur verður mjúkur og sætur og hægt að nota á margvíslega vegu. Hitið ofninn í 150 gráður Skerið „toppinn“ ofan af hverjum hvítlauk. Setjið hvítlaukana í þykkan pott eða ofnfast fat með loki. Það er líka hægt að nota minni form og loka með álpappír. Hellið olíu yfir hvítlaukana. Saltið. Setjið í ofninn og