Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr. Willm-fjölskyldan, sem þá rak veitingahús í Barr, stofnaði víngerðina 1896 og náði fljótt undraverðum árangri í útflutningi.

Víndómar

Þetta argentínaska hvítvín kemur úr smiðju Nicola Catena en Alamos-lína hans er þekkt fyrir að gefa mikil gæði fyrir peninginn.

Víndómar

Þessi Cabernet frá Chile er framleiddur af vínhúsinu Casa Lapostolle sem er í eigu frönsku Marnier-Lapostolle-fjölskyldunnar, sem þekktust er fyrir að framleiða líkjörinn Grand Marnier. Vínhúsið í Chile hefur löngum notið góðs af þekkingu víngerðarmannsins Michel Rolland.

Víndómar

Þessi nýsjálenski Merlot er ágætlega fjölhæfur, hann hefur kannski ekki afgerandi persónuleika en á móti þann sveigjanleika sem þarf til að nýtast sem alhliða matarvín.

Víndómar

Þetta sjarmerandi Petit-Chablis kemur frá hjónunum Isabelle og Denis Pommier sem stofnuðu lítið vínfyrirtæki í Chablis árið 1990. Þau ráða nú yfir 13 hektörum af vínekrum allt frá Petit-Chablis upp í vín í gæðaflokknum Premier Cru.

Víndómar

Vínsamlög eru algeng í Evrópu, í Frakklandi kallast þau co-operative og á Ítalíu cantina. Kerfið ekki ósvipað íslensku mjólkursamlögunum. Í flestum tilvikum framleiða þau ódýr og óeftirminnileg vín þar sem þrúgum og vínum frá hundruðum vínbænda er sturtað saman. Í einstaka tilvikum eru samlögin hins vegar leiðandi í gæðaframleiðslu á sínu svæði.

Víndómar

Þetta er vín frá San Juan héraðinu í Argentínu sem er ekki nærri því eins þekkt og nágranninn í suðri, Mendoza. Engu að síður er San Juan næst mikilvægasta vínræktarsvæði Argentínu.

Víndómar

Árið 2004 var afbragðsgott í Rioja og stofnunin Consejo Regulador sem er hin opinbera eftirlitsstofnun héraðsins flokkar hann sem „stórkostlegan“. Að flestra mati er þetta einhvern besti árgangur síðari tíma í Rioja, ekki ósvipað og 2005 var viða í Frakklandi.

Víndómar

Vínin frá Beaujolais hafa átt svolítið undir högg að sækja upp á síðkastið vegna þess hvernig vínbændur þarblóðmjólkuðu vinsældir Nouveau-vínanna þar til neytendur gáfust hreinlega upp. Beaujolais-vín hurfu nær alfarið úr hillum vínbúða hér en nú eru þau sem betur fer komin aftur. Þetta geta nefnilega verið virkilega ljúf vín.

1 48 49 50 51 52 57