Þetta suður-ástralska hvítvín frá Grant Burge sló í gegn í smökkun í sumarhitum vikunnar. Fersk og ertandi angan af framandi ávöxtum, sætum melónum, bananajógúrt og ferskjum. Mjúkt, ferskt og þægilegt hvítvín sem er tilvalið með til dæmis grilluðum kjúkling og asískum réttum.
Á frábæru verði sem togar vínið upp í fjórðu stjörnuna.
1.599 krónur.