Þessi kokkteill er sköpunarverk Fannars Alexanders Arasonar á Vegamótum en innblásturinn að Svarta galdri mun hann hafa fengið í Jakútíu!
3 cl Finlandia Lime Fusion Vodka
3 cl Kahlúa
4 limesneiðar
3 tsk hrásykur
Magic
Merjið hrásykur og limesneiðar saman í viskýglasi. Hellið vodka og Kahlúa í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í glasið, bætið við muldum klaka og fyllið upp með Magic.