Þetta er þriðja vínið frá þessu framsækna vínhúsi í Chile sem við tökum fyrir og líkt og hin fyrri er nútímalegt og ávaxtaríkt vín að ræða. Syrah-þrúgan hefur verið að færa sig upp á skaptið í Chile á síðustu árum og stöðugt er verið að finna ný svæði þar sem hún dafnar með endemum vel.
Þrúgurnar sem fara í þetta vín eru ræktaðar í Colchagua-dalnum, einu mest spennnandi ræktunarsvæði landsins. Þar eru miklar hitasveiflur innan sólarhringsins. Mjög heitt á daginn en yfir nóttina flæðir inn kalt loft frá Kyrrahafinu, ekki ósvipað aðstæðum í Napa og Sonoma.
Cono Sur Syrah 2008 er dökkt og þykkt með feitum og sætum, allt að því sultukenndum brómberjaávexti og rifsberjum. Þarna má líka greina brennt hjólbarðagúmmí og súkkulaði. Mjúkt og ágengt, með þykkum sætum ávexti í munni, nokkuð tannískt í lokin og fimm mánuðir í eik segja til sín. Enn nokkuð ungt, gott matarvín sem má geyma í 1-2 ár.
1.695 krónur