Alexander er klassískur kokkteill en í hinni upprunalegu útgáfu er notað koníak. Hér bregðum við hins vegar út af venjunni og notum sjö ára gamalt kúbanskt romm.
3 cl Havana Club 7ára
2 cl De Kuyper Creme de Cacao
3 cl rjómi
Setjið í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og síið í kokkteilglas.