Tvö vín frá víngerðarkonunni Florence Prud’Homme í Chateau Saincrit í Bordeaux eru nýkomin í vínbúðirnar. Fyrir skömmu fjölluðum við um vínið með silfurlitnum. Nú er komið að víninu með gulllitinn á flöskuhálsinum.
Vínið er blanda úr Merlot (80%) og Cabernet Sauvignon. Þetta er nokkuð meira vín en Argent-vínið og í stílnum munar hvað mestu um að þetta vín hefur verið geymt á eikartunnum í tólf mánuði. Það er einmitt eikin sem er hvað mest áberandi í byrjun. Reykur, viður og smá súkkulaði í bland við ágætlega þykkan, dökkan berjaávöxt. Gefið víninu smá tíma til að anda og þá rennur eikin betur saman við ávöxtinn. Þetta er nútímalegt, vín, mjúkt og þægilegt.
2.279 krónur.