Það er afskaplega sumarlegt að sötra góða kokkteila og þó svo að íslenska sumarið bjóði kannski ekki upp á að setið sé undir pálmatrjám við sundlaugarbakka er enginn ástæða til þess að láta það aftra sér.
Sumarkokkteilar eiga að vera ferskir og svalandi og hér á Norðurlöndum á líklega betur við að hafa ber í lykilhlutverki frekar heldur en suðræna ávexti og kókos. Strawberry Colada sækir hins vegar innblástur í kokkteila Karíbahafsins, eins konar daiquiri undir áhrifum af Pina Colada. Wild Raspberry styðst hins vegar við svipaða tækni og mojito nema hvað að hér eru það rifsber, trönuber og jarðarber sem setja línurnar ásamt basil og lime. Strawberry Martini er svo eins og nafnið gefur til kynna drykkur í Martini-stíl – hristur ekki hrærður – sem er hlaðinn ferskum jarðarberjum er endurspeglast vel í bragðinu.
Í Purple Rain er skipt úr rauðu yfir í blátt með því að nota sólberjavodka og curacao-líkjör. Blái liturinn tekur svo algjörlega völdin í hinu svala gin-Martini Avatar. Svona í kringum sumarsólstöður er svo tilvalið að setja saman Sólsetur, ginmartini með apríkósubrandí. Í Tour de France mætast svo Frakkland og Danmörk en í hann er notað koníak og ákavíti.