Ernst Loosen er óumdeilanlega einn af virtustu vínframleiðendum héraðsins Mósel í Þýskalandi. Hann var til að mynda kjörinn maður ársins hjá breska víntímaritinu Decanter árið 2005, sem er ein mesta upphefð sem hægt er að fá í vínheiminum.
Þetta er að sjálfsögðu Riesling-vín líkt og önnur bestu vín Mósel og kemur af ekrunni Wehlener Sonnenuhr. Þetta er hörkuvín og sýnir vel bestu einkenni Mósel-vína, fullkomið samspil af tærum ávexti, sýru og náttúrulegri þrúgusætu. Bjartur ávöxtur, sætar límónur, ananas og apríkósur ásamt því að vera svolítið míneralískt. Þægilega mild sæta í munni, sem leikur vel við ferska sýruna, vínið gífurlega ávaxtaríkt og heillandi. Líkt og margir aðrir framsæknir víngerðarmenn er Loosen farinn að nota skrúfutappa á hvítvínín sín að miklu leyti.
2.680 krónur