Grískar kjötbollur

Grikkir eiga margar tegundir af kjötbollum. Hér er ein útgáfa af grískum kjötbollum með lambakjöti og myntu.

  • 500 g lambahakk
  • 2 skalottulaukar, fínsaxaðir
  • 2 grænir chilibelgir, fræhreinsaðir og fínsaxaðir
  • 3-4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
  • 1 væn lúka mynta, fínsöxuð
  • 50 g beikon, skorið mjög smátt
  • rifinn börkur af 1 appelsínu
  • salt og pipar

Hitið olíu á pönnu og mýkið fínsaxaða skalottulaukinn, hvítlaukinn og chili. Leyfið að kólna.

Blandið saman lambahakkinu, laukblöndunni af pönnunni, appelsínubörk, beikon og myntu. Saltið og piprið.

Mótið litlar kjötbollur á stærð við golfkúlur, Gott er að nota ísskeið.

Steikið kjötbollurnar. Berið fram með steiktum tzatziki jógúrtsósu. Einnig er gott að hafa með steiktar kartöflur með ferskri steinselju og suður-ítalskt tómatasalat.

Með þessu hentar kröftugt suður-evrópskt rauðvín best, t.d. Beso de Vino Seleccion.

Deila.