Concha y Toro Trio Reserva 2010

Líkt og önnur Trio-vín frá Concha y Toro er þetta þrenna, í þetta skipti blanda úr þremur rauðum þrúgum, Merlot, Carmenere og Cabernet Sauvignon, ræktaðar í Rapel-dalnum í Chile.

Dökkt, fjólublátt, kröftugt í nefi. Í fyrstu gýs eikin upp en síðan tekur þykkur ávaxtahjúpur við, plómur, sólber umlukinn myntu. Sætur sólberjaávöxtur í munni, þykkt og afskaplega mjúkt með mildum tannínum. Flott og ljúft.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

 

 

Deila.