Fortius-vínin eru gerð í vínhúsi í eigu Faustino í héraðinu Tierra Estella. Vínin eru ræktuð í Navarra en rétt við mörkin að Rioja og óneitanlega er afskaplega mikill Rioja-fílingur í þessu víni.
Blandan er 75% Tempranillo og 25% Cabernet Sauvignon, vínið hefur náð góðum þroska, þykkur dökkur ávöxtur, sultuð sólber og jarðarber, í bland við töluverða vanillu, eik. Kjötmikið vín með mjúkum tannínum.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.