Ofnbakaður ítalskur kjúklingur

Það getur verið ágætis tilbreyting að skella pastaréttinum inn í ofn líkt og gert er með þennan ítalska kjúklingarétt. Það er hægt að nota bringur, lundir eða úrbeinuð læri.

  • 3 kjúklingabringur, skornar í litla bita
  • 500 g pasta t.d. Penne eða Ziti
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • búnt steinselja, flatlaufa, fínsöxuð
  • 1 laukur, niðurskorinn
  • 4-5 hvítlauksgeirar
  • 100 g beikon eða Pancetta
  • 1 mozzarella-kúla
  • 1 dl rasp (heimatilbúið)
  • 3 dl Parmesan, nýrifinn
  • 1 væn teskeið Herbs de Provence (Pottagaldrar)
  • salt og pipar

Hitið olíu á pönnu og mýkið laukinn og pancetta/beikon  í 4-5 mínútur á miðlungshita. Bætið þá hvítlauknum við og eldið áfram í 1-2 mínútur. Setjið kjúklingabitana á pönnuna og brúnið á öllum hliðum. Saltið, piprið og kryddið með Herbs de Provence. Hellið tómötunum út á pönnuna og látið malla í um 10 mínútur. Bætið saxaðri steinseljunni saman við.

Sjóðið pasta. Blandið pasta og kjúklngablöndunni vel saman í ofnföstu fati.

Rífið eða skerið mozzarella niður og blandið saman við.

Blandið raspi og niðurrifnum parmesan saman og stráið yfir.

Eldið í 200 gráðu heitum ofni í um 25 mínútur.

Deila.