Piccini Verdicchio Castelli di Jesi 2010

Vínþrúgan Verdicchio er fyrst og fremst ræktuð í héraðinu Marche á austurströnd Ítalíu. Þekktasta svæðið er Castelli di Jesi. Algengt er, líkt og í þessu tilviki, að vínin séu seld í flöskum sem minna á amfórur, þ.e. ílátin sem Rómverjar notuðu undir vín.

Piccini Verdicchio Castelli di Jesi er ansi dæmigerður Verdicchio, í nefi þurrkað hey, hnetur og fíkjur, þurrt og þétt í munni, sýrumikið.

1.590 krónur. Ágætis kaup.

Deila.