Fischer Classic Blauer Portugieser 2011

Austurríki er þekktast fyrir hvítvínin sín en austurrískir víngerðarmenn hafa á undanförnum áratugum verið að færa sig rækilega upp á skaptið í framleiðslu rauðvína. Hér er það þrúgan Blauer Portugieser sem er notuð en hún er aðallega ræktuð í Þýskalandi, Austurríki og Ungverjalandi en upphaflega er talið að hún hafi, líkt og nafið bendir til, komið frá Portúgal. Í Austurríki hefur hún verið ræktuð frá því á átjándu öld.

Fischer Blauer Portugieser er vín frá Thermenregion þar sem þrúgan hefur verið ræktuð hvað lengst. Það er fjólublátt á lit, angan af bláberjum, fjólum og kanilstöng,  frekar létt og ávaxtaríkt í munni, en leynir á sér í margslunginni bragðdýpt, kryddað, nokkuð tannískt, sem gerir það að góðu matarvíni.

1.896 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.