The winner takes it all var annar smellur af Super Trouper-plötunni og þessi drykkur ber nafnið vel, flott samsetning af sólberjavodka og heimagerðu aðalbláberjasírópi.
- 4 cl Absolut Kurant
- 3 cl aðalbláberjasíróp
- 1 límónubátur, kreystur
Blandið saman í glasi ásamt klaka. Fyllt upp með sódavatni. Skreyttur með aðalbláberjum.