Viskýhúsið Higland Park á Orkneyjum er með þeim elstu, stofnað 1798. Eins og hver sá sem komið hefur til Orkneyja getur vitnað um þá eru tengslin við hið norræna óvíða sterkari utan Norðurlandanna. Það er því kannski við hæfi að nýjasta lína Higland Park skuli kennd við Valhöll.
Eitt af viskýunum í línunni heitir Þór (Thor), það er 16 ára mat og fékk á dögunum tvenn virðuleg verðlaun. Annars vegar gullverðlaun og „best in class“ á International Spirits Challenge og hins vegar sérstök „Spirits Designs Master Award“ á Spirits Business 2012 Awards.
Thor hefur ekki verið fáanlegt hér á landi en samkvæmt okkar heimildum þá er stefnt að því að hefja sölu á viskýinu í haust.