Vínsmakkarinn á Laugaveginum

Vínþjónninn Stefán Guðjónsson lét tuttugu ára gamlan draum rætast á menningarnótt og opnaði sinn eigin vínbar að Laugavegi 73 undir því viðeigandi nafni Vínsmakkarinn. Stefna Vínsmakkarans er að vera með gott úrval góðra vína og bjóra á sanngjörnu verði auk þess sem boðið er upp á smárétti, s.s. ostabakka og pylsur.

Stefán hefur langa reynslu sem vínþjónn, margir tengja hann við veitingahúsið Argentínu þar sem hann starfaði um árabil en einnig hefur hann haldið úti vefsíðu og sjónvarpsþætti á ÍNN undir merkjum Vínsmakkarans. Stefán hefur lengi verið virkur í starfi íslenskra vínþjóna og einn af þeim sem tók þátt í stofnun samtaka þeirra á sínum tíma. Hann hefur tekið þátt í keppnum bæði hérlendis og erlendis og m.a. hlotið titilinn „vínþjónn ársins“.

Stefán segir að á næstu vikum verði úrval vína aukið til muna á Vínsmakkaranum og hann hefur pantað sérstaka vínrekka að utan sem settir verða upp inni á staðnum. Ætlunin er að vera með allt í boði frá einföldum en góðum vínum upp í bestu vín sem fáanleg eru – allt á sanngjörnu verði með fastri álagningu.

Deila.