Drouhin Laforet 2010

Lengi vel voru frönsk vín frá þekktum héruðum á borð við Bourgogne ekki merkt sérstaklega með hvaða þrúgutegund væri notuð. Það hefur breyst á síðustu árum þar sem að nýjaheimsvínin hafa gert marga neytendur meira meðvitaða um þrúgurnar en svæðisbundinn uppruna þeirra. Þess vegna er Laforet-vínið frá Joseph Drouhin nú í seinni tíð líka auðkennt með þrúgunni – Pinot Noir – þótt auðvitað hafi rauð Búrgundarvín ávallt verið gerð úr Pinot Noir-þrúgunni.

Og þetta er alveg prýðilegur Pinot Noir, skógarber, lyng, rifsber og möndlukaramellur í nefi. Létt en þykkt og heldur sér lengi í munni, ágæt tannín. Þetta er vín sem þolir þyngri mat en maður heldur. Fínt með kjúkling og grísalundum en einnig með lambi og nauti ef meðlætið er ekki yfirþyrmandi.

2.597. krónur.

Deila.