Domaine Laroche Chablis Saint-Martin er gert úr Chardonnay líkt og öll Chablis-vín og þrúgurnar koma af ekrum í eigu Laroche. Vínið er kennt við heilagan Martein, sem er verndardýrlingur Chablis.
Mjög ljóst á lit, í nefi sítrus, limebörkur, eggjarauður þeyttar með sykri, míneralískt, kalksteinn. Ávöxturinn er massaður í munni, smá hnetukeimur og fersk sýra. Klassa Chablis sem ánægjulegt er að sjá með skrúfuðum tappa.
3.397 krónur.