Cono Sur Pinot Noir 2011

Vinhúsið Cono Sur í Chile er athyglisvert fyrir margar sakir, ekki síst mikla áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og þrúgur á borð við Búrgundarþrúguna Pinot Noir. Þetta vín er úr „hjólaseríunni“ frá Cono Sur sem er einfaldasta línan en hljólið á myndinni er tákn þess að starfsmenn leggja áherslu á að hjóla í stað þess að nota bifreiðar við vinnu á ekrunum.

Þetta er virkilega snotur og fínn Pinot, gefið honum bara smá tíma til að opna sig, það borgar sig. Þægileg angan af rauðum og svörtum berjum, kirsuberjum, rifsberjum og sultuðum plómum, létt kryddað. Allþykkt og mjúkt í munni, sætur og þægilegur ávöxtur, mjúk tannín.

1.899 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.