í þessum rétti mætast saman sætt og sterkt og útkoman varð þessi fínasti réttur í svolítið taílenskum fíling sem öllum líkaði við. Hann er mun mildari en chilimagnið gefur til kynna.
- 600 g beinlaust kjúklingakjöt (læri,bringur eða lundir) skorið í strimla
- 1 stór púrrulakur, skorinn í strimla
- 1 laukur, fínsaxaður
- 1 rauður chili fínsaxaður
- 1 dós kókosmjólk
- 1,5 dl hnetusmjör
- 1 msk púðursykur
- safi úr hálfri sítrónu
- 1 tsk kjúklingakraftur eða 1 teningur
- 1 msk panang curry (má sleppa)
- væn klípa af chiliflögum
- matarolía
- salt og pipar
- 1 pakki asískar eggjanúður
Blandið kókosmjólkinni, hnetusmjörinu, púðursykrinum, sítrónusafanum og kjúklingakraftinu saman í potti. Látið sjóða upp og lækkið þá hitann og látið malla á vægum hita. Mýkið á meðan púrrulaukinn ,laukinn og chilí á pönnu. Blandið saman við sósuna í pottinum. Steikið næst kjuklingastrimlana á pönnu ásamt, kryddið með salti, pipar, chiliflögum og panang curry. Færið síðan kjúklinginn yfir í pottinn og látið malla áfram á meðan að þið sjóðið núðlurnar.