Crasto Douro 2010

Douro í Portúgal er þekktast fyrir púrtvínin en á síðustu árum hafa rauðvín frá þessu svæði, gerð úr sömu þrúgum og púrtvínin, vakið stöðug meira athygli.

Þetta er dökkt, þykkt og mikið vín, kröftug berjaangan, sultuð bláber og krækiber, viður, kryddað, þarna er sedrusviður og vanilla. Douro er heitt víngerðarhérað og það skilar sér í bæði krafti en einnig mjúkum tannínum en jafnframt aflmiklum, vínið er samt ekki þungt, það hefur góðan ferskleika og ávöxturinn helst bjartur út í gegn. Vín sem þolir kröftugan mat, góða osta og kjöt með bragðmiklum sósum og kryddum.

2.795 krónur. Mjög góð kaup og fær einkunn í samræmi við það.

Deila.