Hraðlestin í Kringluna

Hraðlestin, sem er útibúi frá Austur-Indíafjelaginu, er um þessar mundir að opna nýjan stað sinn í Kringlunni og er hann á fyrstu hæð á móti Útilífi.
Þetta er fjórði staður Hraðlestarinnar en Hraðlestina er einnig að finna í Smáranum í Kópavogi,  á Hverfisgötu og í Lækjargötu. Á  matseðlinum í Kringlunni verður boðið upp á áþekkan matseðil og í Lækjargötu,  Thali – hefðbundinn hádegisverð Indverja, indverskar pitsur, naan, gun powder masala sætkartöflu-franskar og fleira gómsætt. Þá verður hægt að panta mat og taka með sér heim að lokinni verslunarferð.

Það var mikið um dýrðir á laugardaginn þegar haldið var upp á opnun staðarins og voru þessar myndir teknar við það tækifæri.

Deila.