Jólamarkaður Búrsins í Hörpu

Helgina 14-15 des mun ljúfmetisverslunin Búrið blása til veislu, því þá er komið að hinum árlega matarmarkaði Búrsins. Í ár er hann haldinn í Hörpu. Þar koma saman um 50 frumframleiðendur víða af landinu. Segja má að Búrið sé að bjóða í bæinn því þarna eru framleiðendur sem eru að selja sínar vörur í Búrinu.

Þetta er stærsti matarmarkaður sem er haldinn á landinu. Framleiðendur koma frá Hornafirði, Hvammstanga, Þykkvabæ, Rifi á Snæfellsnesi, Dölunum, Hvalfirði, Kjós, Löngumýri, Grímsnesi, Fljótsdalshéraði, Hallormstað, austfjörðum og Eyjafjöllum svo eitthvað sé nefnt.

Brot af því sem verður í boði: Tvíreykt hangilæri frá Kiðafelli, ærpylsur frá Öræfum, sætreyktur ufsi frá Snæfellsnesi, Villt svínakjöt frá Hvalfirði, salt úr Ísafirði, rabarbaravörur frá Löngumýri, lífrænt bygg frá Vallarnesi, Birkisafi frá Hallormstað, sultur frá Reyðarfirði og svo mætti lengi telja.

Hér fyrir neðan er listi yfir þá framleiðendur sem munu vera með vörur sínar á jólamarkaðnum:

Saltverk.
Vestfirskt kristalsjávarsalt er náttúrulegt og umhverfisvænt salt unnið úr hreinum Norðuríshafssjó úr Ísafjarðardjúpi með heitu hveravatni. Saltið er handunnið af sölturunum á Reykjanesi sem verka saltið af alúð, metnaði og skilningi á að salt er ómissandi þáttur í hverri máltíð. Saltverks teymið verður með nýung í ár sem einungis er hægt að fá á jólamörkuðum – Grenisalt!. Einnig með innpakkað vestfirska sjávarsalt til sölu og öll bragðbættu söltin sín.
Rabarbía.
Rabarbarabóndi Íslands hann Kjartan verður með sínar alkunnu rabarbarakaramellur í gjafaumbúðum sem og sultur og fíflasíróp.
Frú lauga.
Verður með sölu á íslenskt grænmeti í bland við alþjóðalegan hágæða mat. Ferska nýpressaða ávaxtasafa.
Urta iclandcia.
Á boðstólum verður úrval af jurtate allt unnið úr íslenskum jurtum. Einnig síróp, sultur og frábær bragðbætt sölt t.d. bláberjasalt og þarasalt.
Tariello.
Frá Þykkvabæ fáum við Teriello sem framleiðir úr úrvals íslensku hráefni eftir aldagamalli ítalskri hefð. Verður með gæða þurrverkaðar i salami pylsur.
Bjarteyjarsandur.
Bjarteyjarsandur í Hvalfirði hefur algjöra sérstöðu á kjötmarkaði hvað varðar afurðir af frjálsum útigrísum. Þau verða með hamborgarhryggi, léttreykt svínslæri, óreykta jólaskinku, bayonneskinkur og beikon.Nýjung frá þeim í ár eru heitreyktar handverkspylsur! En það eru pylsur úr vistvænu svínakjöti. Einnig bjóða þau uppá birkireykti bláberjavöða, kofareykt bjúgu, hangikjöt og fleira góðgæti.
Svandís Kandís.
Handgerður íslenskur brjóstsykur sem er án allra aukaefna og með náttúrulegum litum og bragðefnum. Jóla brjóstsykurinn Epla&Kanil og Appelsína, Kanill og Negull verða með í fjörinu og svo auðvitað allir hinir molarnir
Sandholt bakarí.
Ásgeir Sandholt mætir með þrjár tegundir af sínu ómótstæðilega Panettone. Hægt er að fá hana með sítrusávöxtum. Þá er einnig hún fáanleg með súkkulaði. Þriðja útgáfan sem er óhefðbundari og í takmörkuðu magni er með Gianduja súkkulaði og heslihnetum. Rennur 10% af söluandvirði súkkulaði og hnetu til Barnaspítala Hringsins. Panettone er gómsæt, ítölsk jólakaka sem hefur verið bökuð á Norður-Ítalíu frá því á fimmtándu öld og hefur í árhundruð verið ómissandi hefð í jólahaldinu þar. Einnig verður handgert konfekt og fl. með í för.
Bergson mathús.
Bergsson Mathús ætlar að vera með allskonar góðgæti og að sjálfsögðu með heilsubrauðin okkar vinsælu og hummus og pestóið – rautt og grænt. Einnig verða þau með sitt eigð múslí og jólasultu sem er blanda af hindberjum og rabbbara – yndislega góð sulta. Ekki má gleyma hnetublöndunni sem er geysilega vinsæl. Það verður líka boðið upp á grafnar gæsa bringur sem og frosnar gæsabringur fyrir jól eða áramót. Stefnt er að því að búa til confit (gæsa læri) og setja í krukkur.
Matarbúrið.
Doddi og Lísa mæta með sítt fyrsta flokks ungnautakjöt af Galloway kyni sem hefur þá sérstöðu að vera grasfóðrað og vel hangið. Þau verða með kynningar og sölubás inn í Hörpunni og einnig mun Tuddinn standa vaktina fyrir utan, en þar geturu fengið þér hamborgara eins og hamborgari á að vera.
Brauð og kökugerðin.
Frá Hvammstanga fáum við hjónin frá brauð og kökugerðinni með dásamlegan bakstur og bestu hunangs-stykki sem fyrir finnast.
Tefélagið.
Tefélagið selur gæðate til fyrirtækja, veitinga- og kaffihúsa. Við leggjum metnað og alúð í að bjóða aðeins upp á yndisleg og bragðgóð te sem hafa fengið jákvæð ummæli viðskiptavina okkar og félaga í Tefélaginu. Einnig er hægt að kaupa áskrift af tesendingu sem hlítur að vera hin fullkomna jólagjöf.
Íslensk hollusta.
Hollustufæði sem inniheldur hátt í tvo tugi vara jurtate, krydd, sósur, osta, snakk, kryddlegin söl, berjasaft og baðefni. Eyjólfur fer ótroðnar slóðir í framleiðslunni. Engum hafði til dæmis dottið í hug áður að rista beltisþara og hafa sem snakk, nota birki, fjallagrös og ætihvönn í osta, stefna saman rabarbara og ætihvönn í mauki (chutney) eða blanda saman muldum Hekluvikri og jarðsalti úr borholu á Reykjanesi til að gera hollustuefni fyrir baðvatn! Leiðarljós Eyjólfs er að nota hrein íslensk náttúruefni og láta þau njóta sín í eigin ferskleika og einfaldleika.
Kaffitár.
Kaffitárínur ætla að vera með hátíðakaffið sitt sem er alveg sérstaklega gott í ár. Þá ætlum við líka að vera með gjafapakkningar og fleira fyrir fólk til að gæða sér á staðnum og til að taka með.
Tehúsið.
Býður uppá handgerð, sjaldgæf og hágæða telauf. Þau munu leiða neitendur í sannleikan um hinn fullkomna tebolla, ólíkar tetegundir, kosti þeirra og heilsubótar áhrif. Te eru full af andoxunarefnum og vítamínum.
Halla fagradal.
Halla Steinólfsdóttir er sauðfjárbóndi í Fagradal í Dölunum. Hún er með lífrænt lambakjöt og elur lömbin sín á hvönn.
Lilli kiðafell.
Kemur úr Kjósinni með sitt tvíreykta og ómótstæðilega hangikjöt. Þú hreinlega verður að eiga tvíreykt hangilæri frá Kiðafelli hangandi upp í rjáfri á aðventunni.
Dóra culiana.
Hráfæði eins og það gerist best.
Litli bóndabærinn.
Bresk hefð úr íslensku hráefni. David hjá litla bóndarbænum fer ekki alltaf hefðbundnar leiðir og býður meiri að segja uppá latte með ærmjólk.
Móðir jörð.
Mæta með lífrænar sælkeravörur beint frá bændum í Vallarnesi á Fljótsdalshéraði. Chutney, sultur, veislukex og fleira hamingjusnarl.
Ómar makríll.
Ómar kemur frá Höfn í Hornafirði, þar sem hann fer sjálfur út á litlum bát og veiðir makríl. Hann verkar hann síðan, heitreykir, fullvinnur og kemur og selur hann í flökum eða í pete.
Vinekran.
Stefan færir okkur fyrirtaks vínberjasafa af hæsta gæðaflokki.
Artic mood.
Lífrænt te sem hæfir þínu skapi hverju sinni, hágæða blöndur sem eigendur Artic mood blanda með alúð.
Holt og heiðar.
Færa okkur birkisafa, birkisíróp og fleiri dásemdir úr villtri íslenskri náttúru frá Hallormstað.
Hrefnub.og jurtir/ klausturkaffi.
Frá Egilstöðum fáum við sultur, ber og góðmeti. Austfirskar Krásir sem er unnið úr hráefni úr héraði, byggja á sérstöðu og hefðum. Kjörorðin eru Upplifun – Vitund – Sérstaða
Sólheimar.
Koma í bæinn með sínar dásamlegu lífrænu kökur, krem (sem má borða) og fleira fallegt og gott úr þeirra smiðju.
Omnom súkkulaði.
Omnon súkkulaði er gert alveg frá baunum í súkkulaðibar hér á Íslandi, það fyrsta sinnar tegundar. Handgert og ómótstæðilegt.
Erpstaðir.
Ef jólin eru ekki tíminn til að gæða sér á alvöru rjómaís, skyrkonfekti, rjóma og fleiru beint frá bændum á Erpstöðum. Þau verða með allt það besta sem beljur hafa uppá að bjóða.
Reykhöll Gunnu.
Frá Rifi á Snæfellsnesi kemur hún hún Gunna sem á reykhöll. Hún tvíreykir lambahjörtu, ufsa, ýsu og fl. Frábært aðventusnarl og frábær gjöf.
Rusk.
Tvíbakað brauð er frábær íslensk framleiðsla frá Rusk. Tvíbökuð brauð eru unninn úr fyrsta flokks hráefnum, eru sykur og gerlaus og án nokkura aukaefna. Tvíbakan er einstaklega næringarrík og bragðgóð og hentar við margvísleg tækifæri. Þetta er sannkölluð sælkeravara sem er ómissandi á ostabakkann, er frábær í morgunmat með áleggi, tilvalin í millimál ein og sér, gott með súpu og salati.
Skaftafell Delicatessen / Klaus Kretzer.
Klaus Kretzer er þjóðverji sem býr á Skaftafelli á Öræfum. Hann vinnur sínar pylsur úr ærkjöti. Ærnar kaupir hann beint frá nágrönnum sínum, sauðfjárbændum í Öræfum. Bragðupplifun sem er nokkuð nýstárleg, bæði fyrir Íslendinga sem og aðra evrópubúa en hrápylsur úr ærkjöti fyrirfinnast varla á meginlandinu heldur.
Þorvaldseyri.
Bændur undir Eyjafjöllum mæta með repjuolíuna sína sem er ómissandi í jólabaksturinn, byggið, hveitið og fleira sem fer vel í maga og gjafir.
Kokkurinn, mat-húsið.
Mat-Húsins ehf framleiðir humar og humarsoð, svo þú getur töfrað fram hina fullkomnu humarsúpu á einfaldan og þægilegan hátt. Vörurnar frá Kokkinum innihalda engin aukaefni.
Sigurveig matarkistan.
Sigurveig í matarkistunni mun mæta með sínar víðfrægu makkarónur og fleiri hágæða afurðir.
Reykjavík rosthers.
Verða að selja og kynna kaffið sitt, þau hella uppá gamla mátann og fræða þá sem vilja um undur kaffiheimsins. Þau bjóða einnig uppá ýmsar vörur til uppáhellingar.
Slow Food Bás.
Verður með kynningarbás, en matarmarkaður Búrsins er haldin í tilefni af Tera Madre deginum. Terra Madre dagurinn er haldinn um heim allan til að leggja áherslu á mat úr héraði og mikilvægi þess bæði fyrir neytendur og framleiðendur. Slow Food samtökin hafa haft frumkvæði að Terra Madre deginum sem er haldinn í 150 löndum með þúsundir viðburða um heiminn.
Mekka.
Kynnir drykkjarföng sem fara vel með öllum þessum hágæða matvörum og því nauðsynlegt að koma við hjá þeim.

Deila.