Muga Blanco 2012

Muga er það vínhús Rioja sem lengi hefur verið í hvað mestu uppáhaldi hjá mér, klassískt og áreiðanlegt vínhús þar sem haldið er í hefðirnar en fylgst með nútímanum. Auðvitað eru rauðvínin ær og kýr Muga líkt og annarra vínhúsa Rioja. Hvítvínið þeirra er engu að síður ansi athyglisvert. Það er blanda úr þrúgunum Viura og Malvasia, þar sem Viura er yfirleitt um 90%.

Vínið er gerjað í eikartunnum og látið liggja áfram á tunnum sem gefur því töluvert eikað yfirbragð án þess að eikin verði yfirþyrmandi og skyggi á vínið sjálft, það er jafnvel smá Búrgundarlegt í stílnum. Vínið er fölgult á lit. Þurr sítrusangan í nefi, gul epli, blóm, viður, í munni  mjög fersk sýra, smá beiskleiki, kryddað í lokinn.

2.790 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.