Christophe Mignon á lítið fjölskylduvínhús í Champagne í Frakklandi og hefur farið nokkuð ótroðnar slóðir í vínræktinni. Mignon leggur áherslu á eins náttúrulegar aðferðir og mögulegt er og styðst við lífeflda (biodynamic) ræktun á vínekrunum. Hann á sex hektara í grennd við þorpið Le Mesnil le Huttier í Marne-dalnum og ræktar þar aðallega þrúguna Pinot Meunier. Yfirleitt eru kampavín blanda úr tveimur rauðum þrúgum, Pinot Noir og Pinot Meunier og hvítu þrúgunni Chardonnay. Hrein Chardonnay-vín eru kölluð Blanc de Blancs, það er hins vegar ekki oft sem að maður rekst á kampavín sem eru „pur Meunier“ eins og þetta hér. Að auki er það Brut Naturel, það er enn þurrara en Brut, enginn viðbætt sæta.
Þetta er kampavín sem einkennist af fágun út í gegn, freyðir fínlega, angan af þroskuðum gulum eplum, örlítill vottur af múskat, ristað, mikið brioche-brauð, mjög þurrt en ávöxturinn nær að milda sýruna og vínið er mjúkt, fíngert og þægilegt.
6.590 krónur. Frábær kaup.