Louis Jadot er eitt af þekktustu „négociant“-húsunum í Búrgund og á ekrur á flestum helstu svæðum héraðsins. Þetta er standard-hvítvínið frá Jadot. Flottur hvítur Búrgundari, vanilla og sítrus í nefi, hunang, vínið hefur góða þykkt, svolítið þykkt og smjörkennt með fínni sýru. Mjög flott vín fyrir Búrgandara á þessu verði. Reynið t.d. með grilluðum humar eða laxi.
3.195 krónur. Mjög góð kaup.