Gérard Bertrand Pic St. Loup 2012

Gerard Bertrand er einhver besti og athyglisverðasti vínframleiðandi Suður-Frakklands. Þetta rauðvín kemur frá svæðinu Pic St. Loup, sem er jafnframt eitt athyglisverðasta svæðið í Languedoc. Þetta vínræktarsvæði er um 20 kílómetra norður af borginni Montpellier og nákvæmlega þar togast hafið og innsveitirnar á um hver ráði loftslaginu. Því eru bæði mjög heitir blettir í Pic St. Loup þar sem þrúgurnar Grenache og Mourvédre njóta sín og svalari þar sem Syrah nær góðum þroska.

Þroskuð rauð og svört ber, kirsuber, krækiber, jörð, lyng, míneralískt, þurrt, nokkuð tannískt, langt.Vín fyrir grillað lamb og góða osta.

2.799 krónur. Frábær kaup.

Deila.