Kintu Sauvignon Blanc 2013

Kintu er hvítvín úr þrúgum úr Maule-dalnum í Chile. Maule er eitt af stærstu og elstu vínræktarsvæðum landsins, staðsett um 250 kílómetra suður af höfuðborginni Santiago.

Vínið hefur fölan lit með grænum tónum, sætur, þroskaður sítrus í nefi, limebörkur og suðrænir ávextir, mangó og melónur. Ávöxturinn skarpur, nokkuð sætur í munni, frekar stutt.

1.792 krónur. Góð kaup.

Deila.