Chateau Hanteillan er chateau eða vínhús í Haut-Médoc í Bordeaux í Frakklandi nánar tiltekið í Cissac. Eitt af þessum minni húsum á hinum tignarlega Médoc-skaga sem að framleiðir virkilega góð Bordeaux-vín á viðráðanlegu verði.
Djúpur og flottur sólberjaávöxtur, smá reykur og kaffi, ólífur og jörð. Í munni safaríkur ávöxtur, vínið hefur góða fyllingu og milda tanníska áferð. Virkilega flott vín fyrir verðið.
2.698 krónur. Frábær kaup.