Nú styttist óðum í jólabjórinn og spennan er greinilega að magnast meðal fólks. Ölgerðin
ríður á vaðið með nýja uppskrift af Jólagulli.Ölgerðin hefur verið dugleg undanfarið að breyta
árstíðarbjórum sínum og tekið mið af þróunarvinnunni sem á sér stað hjá Borg Brugghúsi. Borg
bjórar, eins og t.d. Skógarpúki og Bjartur, hafa ratað inn sem árstíðabundnir Ölgerðarbjórar.
Hér er hins vegar á ferðinni bjór sem Borg hefur ekki gert. Ölgerðin hefur ákveðið að fara aðeins
út fyrir rammann og er hér á ferðinni öl sem á ættir að rekja til Belgíu í stað hins hefðbundna
lagerbjórs. Í Jólagull er notað belgískt ölger og einnig er bjórinn kryddaður með appelsínuberki.
Í nefi finnst appelsínan vel, en einnig má finna skemmtilega kryddtóna. Á tungu er hann í léttari
kantinum með smá beiskju. Hann er bragðmeiri en aðrir árstíðabundnir bjórar frá Ölgerðinni og
tel ég að hann eigi vel við mat í kringum hátíðarnar, eins og t.d. jólasíld.
Hér er hinn fínasti hátíðarbjór á ferðinni. Hann ætti að geta brúað bilið hjá fólki sem vill ekki
lagerbjór um jólin en er samt illa við að fara út í bjóra sem ögra bragðlaukunum.