Carmenere er að verða eins konar þjóðarþrúga Chile þótt hún komi upprunalega frá suðvesturhluta Frakklands. Í þetta Limited Selection vín frá Montes eru Cabernet og Carmenere-þrúgur frá Colchagua-dalnum notaðar þar sem Montes var meðal þeirra fyrstu að nema land á síðari hluta síðustu aldar.
Vínið er dökkt, þykkt og mjúkt. Amerísk eik setur töluverðan svip á karakterinn, á móti mann tekur angan af ristuðu kaffi, súkkulaði og smá kókos og vanillu. Ávöxturinn einkennist af þroskuðum sólberjum og plómum, mjúkur og þykkur, örlítið kryddað. Svakalega flott vín fyrir verðið. Vín fyrir rautt kjöt.
1.999 krónur. Frábær kaup. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.