Franska vínfjölskyldan Marnier-Lapostolle hefur látið töluvert til sín taka í víngerð í Chile og fékk einn þekktasta vínráðgjafa Frakklands, Michel Rolland, sér til aðstoðar við að þróa víngerðina hjá Casa Lapostolle. Áherslan hefur ekki síst verið á vín úr þrúgunni Merlot og hér er eitt af þeim vínum úr D’Alamel-línunni.
Dökkur, þykkur litur. Sætur, heitur ávöxtur í nefi, rauð og svört ber, púðursykur, vottur af eik. Þykkt í munni, þurrt, sýrumikið og flott.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.