Barista Pinotage 2012

Pinotage er þrúga sem svolítið frábrugðin þessum hefðbundnu, hún er ekki sjálfsprottin heldur tilbúinn blendingur úr annars vegar Pinot Noir og hins vegar Cinsault sem var fyrst ræktaður í Suður-Afríku árið 1925. Hún er enn nær alfarið bundin við Suður-Afríku og er ein af meginþrúgum suður-afrískrar víngerðar.

Barista er hreint Pinotage frá hinu rótgróna vínhúsi Val de Vle og það stendur undir nafni að því leyti að það er töluvert af kaffi, mokkakaffi í ilmkörfunni, sömuleiðis reykur, jörð, leður og dökkur, heitur kirsu- og trönuberjaávöxtur. Í munni heitt, kryddað, mjúkt.

2.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.