Danska brugghúsið To Øl kynnti á miðvikudag nýjan bjór sem bruggaður hefur verið sérstaklega fyrir veitingahúsið DIll á Hverfisgötu. Tobias Emil Jensen, annar eigenda To Øl var viðstaddur þegar bjórinn var kynntur og sagði hann mikla áherslu hafa verið lagða á að ná fram því íslenska og einnig að brugga bjór sem að myndi falla vel að matargerðinni á Dill. Bjórinn er Saison bruggaður með þýskum Tettnanger-humlum og íslensku birkisírópi. Hann er enn mjög ungur, var búinn að vera tíu daga á flösku þegar að hann var kynntur og á eftir að þroskast skemmtilega á næstu mánuðum.
To Øl var stofnað af Tobias Emil Jensen and Tore Gynther árið 2010 og þykirmeð þeim framsæknari í Evrópu í dag. Tobias og Tore eru báðir lærisveinar Mikkel Borg Bergsjø sem þekktastur er fyrir stofna sitt eigið farandbrugghús Mikkeller. Mikkel var háskólakennari og kennari þeirra Tobias og Tore og komust þeir fljótlega að því að þeir áttu bjóráhugann sameiginlegan.
Líkt og Mikkeller þá flakka To Øl á milli brugghúsa víða um heim og láta brugga fyrir sig samkvæmt sínum eigin uppskrifum. Bjórar To Øl eru fjölbreyttir og fást þeir í yfir þrjátíu löndum og var brugghúsið valið eitt af fimmtíu bestu brugghúsum í heimi á heimasíðunni Rate Beer.
Nýlega hefur komið fram að To Øl og Mikkeller standa að opnun á nýjum bjórstað að Hverfisgötu 12 sem hefur hlotið nafnið Mikkeller & Friends Reykjavík. Mikkeller & Friends Reykjavík opnar 27. febrúar og er í eigu dönsku brugghúsanna og eigenda Kex Hostel, Hverfisgötu 12 og DILL Restaurant Reykjavík.
Þess má geta að bjórinn Snowball frá To Øl hefur síðastliðin tvö ár verið valinn besti jólabjórinn af bjórteymi Vínóteksins.


