Serge Hochar, einn virtasti einstaklingur vínheimsins, er fallinn frá 75 ára að aldri. Hochar vann um árabil að því að koma vínframleiðslu í Líbanon aftur á kortið og honum tókst rækilega að koma vínhúsi fjölskyldunnar, Chateau Musar í Beeka-dalnum á radar vínáhugamanna. Serge Hochar tók við Musar árið 1959 og fyrsti árgangurinn sem hann sendi frá sér var 1956, en víngerðin hafði verið í höndum föður hans, Gaston Hochar.
Eftir að borgarastríðið skall á í Líbanon árið 1972 lagði hann ofuráherslu á að koma víni sínu á alþjóðlegan markað og fljótlega fóru vínin að vekja verulega athygli. Hann var óþreytandi við að kynna vín sín á alþjóðlegum sýningum og við fengum tækifæri til að smakka í gegnum marga árganga af Musar með honum á Vinexpo í Bordeaux fyrir nokkrum árum. Ákefð Hochar fyrir vínum sínum og Líbanon var smitandi og Musar á fjölmarga aðdáendur um allan heim, einstök, sérstök og ótrúlega langlíf.
Serge Hochar var fyrsti einstaklingurinn sem að breska víntímaritið Decanter tilnefndi sem „mann ársins“.
Við fjölluðum um 2007 árganginn frá Chateau Musar í desember í fyrra og má lesa þá umsögn hér.