Chablis-vínið „La Sereine“ frá vínsamlaginu La Chablisienne er kennt við ána sem rennur í gegnum þorpið Chablisienne og liðast um þetta fræga víngerðarsvæði.
Þetta er nútímalegt Chablis-vín og klassískt í senn, stílhreint, skarpt og fókuserað. Angan vínsins er sítrusmikil, greipávöxtur, lime, en einnig suðrænni ávextir og örlítið hunang. Ferskt, þægileg sýra, svolítið míneralískt. Virkilega gott matarvín, með hvort sem er t.d. humar, bleikju eða þorski. Chablis-vín eru með bestu sjávarréttavínum sem hægt er að hugsa sér.
2.869 krónur. Mjög góð kaup.