La Colonia Malbec 2014

La Colonia er lína af vínum frá argentínska vínhúsinum Norton, þetta er ein af ódýrari vínlínum sem að vínhúsið framleiðir, ætlað að draga fram ferskan, óeikaðan og hreinan ávöxt af ungum vínvið.

Malbec-þrúgan er oft auðþekkjanleg á hinum dökka lit sínum og hann leynir sér ekki hér, dimmur og djúprauður. Í nefi er vínið hins vegar bjart, fullt af safaríkum, sætum ögn krydduðum rauðum ávexti. Vínið er afskaplega mjúkt og þægilegt, stíllinn minnir meira á gott suður-franskt rauðvín en mörg hefðbundin Malbec.

2.395 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.