Gerard Bertrand Réserve Speciale Cabernet Sauvignon 2013

Gerard Bertrand er einhver besti og athyglisverðasti vínframleiðandi Suður-Frakklands. Vínin frá Bertrand spanna allt frá ótrúlegum einnar ekru-vínum yfir í Reserve-vín sem að endurspegla frábærlega einkenni einstakra þrúgna í Suður-Frakklandi.

80%
Frábær kaup

Cabernet er ekki ein af hinum hefðbundnu þrúgum Suður-Frakklands en hún unir sér vel í hitanum þar. Dökkt, heitt, kryddað, þroskaður sólberjasafi,  plómur,  þétt og kröftugt í munni, með kröftugum, mjúkum tannínum, örlítill reykur. Hörkuvín. Virkilega flottur árgangur af þessu víni.

2.369 krónur.

  • vinotek.is
    8
Deila.