Vínhúsið Montecillo í Rioja á Spáni hefur verið í miklum metum hjá íslenskum neytendum allt frá því að þau komu fyrst á markað hér fyrir tæpum tveimur áratugum. Hér er nýjasti árgangurinn af Reserva-rauðvíninu.
2009 árgangurinn var mjög góðr á norðurhluta Spánar, þar með talið í Rioja. Þessi Reserva er komin með þægilegan þroska. Þykkur, þéttur og fínn ávöxtur, nokkuð eikað, eikin sæt, töluverð vanilla, tóbak, ferskt, góð sýra. Langt og þétt.
80%
2.669 krónur. Mjög góð kaup. Vín fyrir rautt kjöt og osta.
-
8