Domaine de la Baume Les Mariés Sauvignon Blanc 2014

La BaumeDomaine de la Baume er vínhús í Languedoc-Rousillon í Suður-Frakklandi þar sem ræktaðar eru helstu alþjóðlegu þrúgurnar á einum 170 hektörum.

Þetta er skarpur, flottur og vel gerður Sauvignon Blanc. Töluverður sítrus, greip og vottur af ananas, grösugt, fennel, kryddjurtir, góður suðrænn ávöxtur. Þægileg, fersk sýra.

2.399 krónur. Frábær kaup. Þægilegt vín fyrir td. fordrykkinn eða með silungi.

  • 8
Deila.