Vina Monty Reserva 2009

Vina MontyVina Monty er ný vínlína frá Bodegas Montecillo í Rioja sem er klassísk í stílnum, Í Crianza-víninu er eikin amerísk en hér í reservunni er það frönsk Allier-eik sem er ríkjandi og setur viðurinn ríkan svip á vínið.

Hún er nokkuð áberandi í þessari Reservu, mikill kókos, sæt  madagascar-vanilla, ávöxturinn svolítið sultukenndur, sætur, rauður, míneralískt, Góður strúktúr, mikil mýkt. Vel gert vín.

80%

2.998 krónur. Mjög góð kaup. Með bragðmiklum nautasteikum og lambi.

  • 8
Deila.