Alvario Palacios er einn þekktasti víngerðarmaður Spánar. Hann er einn af þeim sem að endurvöktu svæðið Priorat og þaðan kemur nú eitt af tveimur eftirsóttustu vínum Spánar, L’Ermita. Palacios-fjölskyldan kemur hins vegar frá Rioja og þar stofnaði faðir Alvario vínhúsið Palacios Remondo.
Ólíkt flestum Rioja-vínum er La Montesa ekki Tempranillo-vín heldur er það Garnacha-þrúgan (Grenache) sem er 80% af blöndunni. 2012 var mjög heitt og þurrt ár og það endurspeglast í víninu, ávöxturinn er dökkur, þroskaður, kirsuber, plómur í bland við smá dökkt súkkulaði, reykur og töluvert kryddað. Það hefur þétta og fína uppbyggingu, góð, kröftug tannín, mikil, sæt vanilla í munni, mjúkt og þægilegt.
90%
3.190 krónur. Mjög góð kaup.
-
9