Trivento er eitt af vínhúsunum í eigu Concha y Toro-fjölskyldunnar frá Chile en það var stofnað árið 1997 í þeim tilgangi að nýta hina stórkostlegu aðstæður til víngerðar sem er að finna í Argentínu „hinum megin“ við Andesfjöllin. Vínin frá Trivento hafa reynst einstaklega traust og hlutfall verðs og gæða með því besta sem maður rekst á.
Dökkfjólublátt á lit, ungt, kröftugur, djúpur og svartur berjaávöxtur, sólber, krækiber, mikill ávöxtur í bland við sæta og milda eik, góður strúktúr, fínleg tannín, virkilega vel gert vín.
80%
1.899 krónur. Frábær kaup á þessu verði.
-
8