Pinot Grigio er ekki ein af hinum hefðbundnu þrúgum Valpolicella-héraðsins í Veneto á Ítalíu og eru vín úr henni þaðan því flokkuð sem IGT. Það á við um þetta athyglisverða hvítvín sem eru einnar ekru vín frá Valpolicella Classico svæðinu.
Fölgult á lit, í nefi blóm, ristaðar möndlur, sætur greipávöxtur, karameliseruð gul epli, í munni nokkuð sætur ávöxtur með smá bittertónum.
2.399 krónur. Góð kaup.