Montes-vínin þarf vart að kynna, þau hafa fyrir löngu unnið sér ákveðinn sess enda er hér um að ræða eitt besta vínhús Chile og vínin frá Aurelio Montes klikka sjaldan.
2014 árgangurinn af Chardonnay Rerserva einkennist af suðrænum ávexti, ferskjum, ananas en líka sætur sítrus, limebörkur. Eikin er ekki langt undan, örlítið sviðin, vínið þétt, smjörkennt, með ferskri sýru og vanillu.
80%
1.899 krónur. Frábær kaup á þessu verði.
-
8