Trimbach er einn af þessum stórkostlegu hvítvínsframleiðendum í Alsace sem tekst að gera mikilfengleg vín á vel viðráðanlegu verði. Það er nefnilega þannig að góð vín frá Alsace kosta alla jafna miklu, miklu minna en vín frá öðrum af topp-vínhéruðum Frakklands, s.s. Búrgund. Og þetta eru líka með betri matarvínum sem hægt er að fá.
Þetta er klassíkur, þurr Alsace-Riesling, töluverður sítrus í nefi, sítrónubörkur, út í suðrænan ávöxt, fínlegt, fágað, vín sem hefur afksaplega flottan og þéttan strúktúr, langt og þurrt í lokin.
90%
2.699 krónur. Frábær kaup.
-
9