KEX Hostel heldur hina árlegu íslensku bjórhátíð í fjórða sinn dagana 24.-27. febrúar. Hátíðin er haldin í tilefni af 27 ára afmælisdegi íslenska bjórsins, en þann 1. mars árið 1989 var almenn sala á bjór leyfð eftir 74 ára sölubann. KEX Hostel hefur boðið íslenskum og erlendum bruggurum í heimsókn til að kynna sig og sína framleiðslu dagana sem hátíðin fer fram.
Öll helstu brugghús landsins taka þátt í hátíðarhöldunum og munu bruggarar frá Borg, Ölgerðinni, Einstök, Vífilfelli, Bryggjan Brugghús, Segul 67, Steðja, Ölvisholti og Kalda kynna starfsemi sína á KEX Hostel. Erlendu bruggarnir koma frá örbrugghúsum í Danmörku (To Øl, Mikkeller og Alefarm) og Bandaríkjunum (The Commons Brewery, Pfriem Family Brewers og Surly Brewing Company) og sérhæfa sig í framleiðslu á hágæða handverksbjór (e. craft beer) af ýmsum toga.
Á hátíðinni í ár bætast við þrjár nýjar staðsetningar og eru það annars vegar Mikkeller & Friends Reykjavík og veitingastaðurin við Hverfisgötu 12 og hinsvegar Fiskislóð 73. Á Mikkeller & Friends Reykjavík og Hverfisgötu 12 hefst dagskráin Bjórvikunni mánudaginn 22. febrúar þar sem bjórar frá Warpigs í Danmörku, Upright í Oregon og Omnipollo í Svíþjóð yfirtaka húsið. Sænska veitingahúsið Omnipollo‘s Hatt mun einnig taka yfir eldhúsið á Hverfisgötu 12 en það er veitingahús í sænsku handverksbruggarana frá Omnipollo. Tekið er fram að það koma ekki bruggarar frá Omnipollo og Upright.
Á Fiskislóð 73 verður svo boðið uppá svokallað ofur-session, pop up veitingahús og bari og rokktónleika. Ekki þarf armband fyrir viðburðina á Mikkeller & Friends og Hverfisgötu 12.
Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:
Miðvikudagur, 24. febrúar: kl. 17:00-19:00
- Bjórsmakk á KEX Hostel
- Brugghús: Kaldi, Segull 67, Ölvisholt, The Commons Brewery (US) og Alefarm Brewing
Fimmtudagur, 25. febrúar: kl. 17:00-19:00
- Bjórsmakk á KEX Hostel
- Brugghús: Steðji, Einstök, Mikkeller og To Øl.
Föstudagur, 26. febrúar: kl. 17:00-19:00
- Borg Brugghús, Ölgerð EgilsSkallagrímssonar, Bryggjan Brugghús, pFriem Family Brewers (US) og Surly Brewing Company (US)
Laugardagur, 27. febrúar:
- Kl. 14:00 Bjórvinnustofa og spjall við bruggara í Gym & Tonic á KEX Hostel.
- Kl. 17:00-19:00 Ofursmakk á Fiskislóð 73


