Roda er vínhús sem margir eru farnir að þekkja sem eitt allra besta vínhús Rioja á Spáni. Það hefur raunar rík tengsl við Ísland í gegnum eiganda sinn Mario Rotlant en fjölskylda hans hefur ekki einungis verið einn helsti innflytjandi saltfisks frá Íslandi til Spánar heldur festi hann jafnframt fyrir nokkrum árum kaup á Vífilfelli. Segja má að Corimbo frá Bodegas de la Horra sé eins konar systurvín Roda frá Ribera del Duero.
Vínið er dökkt og mikið eins og Ribera-vínin eru yfirleitt en það nær jafnframt að fanga þá hófstilltu fágun og elegans sem er oft tromp bestu Rioja-vínanna. Dökkrauður, þroskaður ávöxtur, kirsuber,sólber dökkristað kaffi, sæt vanilla, mild angan af ferskum kryddjurtum, lavender og bergamó. Djúpt, með fína lengd og fyllingu, kröftug og mjúk tannín.
4.599 krónur. Frábær kaup, magnað vín.
-
10